Uppskriftaaðild
Hefur þú áhuga á að endurselja uppskriftirnar okkar?
Við bjóðum upp á sérstaka áskrift sem gerir þér kleift að endurselja uppskriftirnar okkar með ákveðnum skilyrðum.
Algengar spurningar
- Leyfi: Aðili greiðir mánaðarlegt leyfisgjald sem veitir þeim rétt til þess að selja uppskriftirnar okkar.
- Sölurás: Aðili selur beint til sinna viðskiptavina á eigin vettvang.
- Tungumálastefna: Útgáfur á mismunandi tungumálum teljast sem aðskildar uppskriftir.
- Skilmálar samnings: Samningsbundið er eins mánaðar uppsagnarfrestur sem er rúllandi. Á þeim tíma er leyfilegt að endurselja bæði stafrænar og/eða útprentaðar uppskriftir.
- Úthlutað efni: Ístex útvegar uppskriftarskrá og mynd af uppskriftinni.
- Tilvísun: Bæði Ístex og Lopidesign.is skulu vera greinilega nefnd.
- Viðurkenning hönnuðar: Fullt nafn hönnuðarins skal koma fram.
- Gildir fyrir: Aðildin nær yfir allar Lopidesign uppskriftir, bæði þær sem eru seldar og ókeypis. Ein ókeypis uppskrift telst sem ein uppskrift.
- Verðlagning: Uppskriftir skulu seldar á eða yfir því verði sem er á Lopidesign.is.
- Kynning: Afslættir af uppskriftum krefjast samþykkis Ístex fyrirfram.
- Garn: Einungis skal mæla með garninu "Lopi" frá Ístex sem ráðlögðu prjónagarni.
- Pakkasala: Notkun á garninu "Lopi" frá Ístex er skilyrði í öllum pökkum eða prjónasettum.
- Uppskriftir: Allar uppskriftir sem birtar eru á vefsíðunni þinni verða að vera hluti af endursölulíkaninu, hvort sem um er að ræða prentað efni eða stafrænt, jafnvel þótt það hafi verið veitt af þriðja aðila.
- Fjöldaframleiðsla: Fjöldaframleiðsla á flíkum (t.d. peysur, opnar peysur o.s.frv.) og stórtæk eintakagerð eða dreifing uppskrifta er stranglega bönnuð án formlegrar samþykktar frá Ístex. Þessar uppskriftir eru einungis ætlaðar til persónulegra nota einstakra prjónara.
- Endursala á markaðstogum: Endursala eða dropshipping á uppskriftum okkar á netmarkaðstorgum (t.d. Amazon, Etsy, o.fl.) er stranglega bönnuð.
- Annað: Litaafbrigði innan pakkasölu teljast sem aðskildar uppskriftir. Til dæmis teljast "Riddari Græn" og "Riddari Brún" innan sama pakka sem tvær uppskriftir samkvæmt aðildinni.
Affiliate Marketing
Ístex býður einnig upp á sérstakan samning um tengiliðamarkaðssetningu með þóknun. Ef þú hefur áhuga, vinsamlegast hafðu samband með tölvupósti á lopidesign@lopidesign.is.